Í bréfinu kemur fram að Trump hafi í forsetatíð sinni sýnt að hann standi ekki undir þeirri „gríðarlegu ábyrgð sem tengist embætti hans“. Einnig kemur fram að Biden búi yfir „reynslu og nauðsynlegri kænsku til að stýra Bandaríkjunum í gegnum sársaukafullt tímabil“.
„Við erum fyrrum embættismenn, sem höfum helgað líf okkar Bandaríkjunum og jafnvel hætt lífi okkar. Við erum hershöfðingjar, aðmírálar, háttsettir foringjar, sendiherrar og öryggissérfræðingar. Við erum Repúblikanar, Demókratar og óháðir,“
segir í bréfinu.
„Þökk sé fyrirlitlegum skoðunum Trump og mistökum þá treysta bandamenn okkar okkur ekki lengur,“
segir einnig í bréfinu sem er undirritað af meðlimum hóps sem kallar sig Þjóðaröryggisleiðtogar fyrir Biden.
Einn þeirra sem undirritar bréfið er Paul Selva sem var einn nánasti hernaðarráðgjafi Trump og varavarnarmálaráðherra þar til í júlí 2019.
Mánuður er síðan tímaritið The Atlantic skýrði frá því að Trump hefði meðal annars kallað bandaríska hermenn, sem hafa fallið í stríðsátökum, „tapara“. Trump hefur vísað þessu á bug.