Trump mun líklega mæta til leiks í ákveðinni vörn vegna afhjúpana New York Times á skattamálum hans en óhætt er að segja að þær séu Trump ekki til framdráttar. Í þeim kemur fram að Trump hafi komið sér hjá því að greiða skatta til alríkisins árum saman. Framboð Trump hafði vonast til að kappræðurnar í kvöld myndu gagnast honum til að komast í betri stöðu í lykilríkjum þar sem hann á á brattann að sækja miðað við skoðanakannanir. En líklegt má telja að skattamálin muni breyta því.
Washington Post bendir á að umfjöllun New York Times hafi fyllt á vopnabúr Joe Biden sem hafi nú yfir ýmsu að ráða til að ráðast harkalega að Trump sem hefur átt erfitt með að útskýra skattamál sín. Hann hefur barist harkalega fyrir að halda þeim leyndum en á sunnudaginn var leyndinni svipt af skattamálum hans. Trump sagði sjálfur að um falsfrétt væri að ræða en hefur ekki lagt fram nein gögn til að afsanna það sem fram kemur í umfjöllun New York Times.
Skattamálin verða því örugglega ofarlega á baugi í kvöld og margir hafa eflaust áhuga á þeim því Trump greiddi minna í skatt en meðal millistéttar Bandaríkjamaður.
Kosningaframboð Biden hóf strax auglýsingaherferð, sem beinist að Trump, á grunni skattaupplýsinganna. Til dæmis hefur verið auglýst á netinu þar sem skattgreiðslur Trump eru bornar saman við skattgreiðslur millistéttarfólks.
„Hversu miklu meira greiddir þú í skatt en Trump forseti?“
skrifaði Biden á Twitter og sett með hlekk á vefsíðu þar sem „Skattareiknivél Trump“ er að finna.