Einn þeirra er Rasmus Paludan, leiðtogi Stram kurs í Danmörku, en hann er þyrnir í augum margra múslima vegna andúðar hans á þeim og endurtekinna mótmæla og bókabrenna þar sem hann kveikir i Kóraninum. Paludan hefur vakið athygli víða um heim fyrir mótmæli sín.
„Ég er nú á dauðalista al-Kaída. Það er dapurt og gremjulegt,“
sagði hann í samtali við B.T.
Auk hans beinir al-Kaída spjótum sínum sérstaklega að danska teiknaranum Kurt Westergaard sem teiknaði skopmyndir af spámanninum Múhameð sem Jótlandspósturinn birti 2005. Teikningarnar vöktu mikla reiði múslima um allan heim. Sómalískur maður reyndi að ráða Westergaard af dögum 2005 en hann slapp með því að læsa sig inni í sérstöku öryggisherbergi á heimili sínu.
Auk þess eru sænski teiknarinn Lars Vilks og hollenski stjórnmálamaðurinn Geert Wilders á dauðalistanum.
„Það er ekki gott að vera á dauðalista en þegar maður endar loksins á einhverjum lista er gott að vera þar með góðu fólki. Charlie Hebdo er gott blað og hinir þrír, Kurt Westergaard, Lars Vilks og Geert Wilders, eru allir góðir menn,“
sagði Paludan og bætti við að danska leyniþjónustan hafi aukið öryggisgæsluna í kringum hann á föstudaginn í kjölfar árásar 18 ára íslamista á tvo menn sem stóðu utan við gömlu skrifstofur Charlie Hebdo í París. Sú árás tengist endurprentun tímaritsins á skopmyndunum af spámanninum.