ScienceAlert skýrir frá þessu. Blóðsteinar myndast þegar járn kemst í snertingu við súrefni og hér á jörðinni þarf bæði vatn og loft til að þetta ferli geti átt sér stað.
„Þetta er mjög dularfullt. Tunglið er skelfilegur staður hvað varðar myndum blóðsteina,“
hefur ScienceAlert eftir Shuai Li hjá University of Hawaii. Hann og samstarfsmenn hans hafa árum saman greint samsetningu málma á yfirborði tunglsins. Það var í tengslum við það sem þeir uppgötvuðu blóðsteina, þeim og öðrum vísindamönnum til mikillar undrunar.
En hvernig mynduðust blóðsteinarnir? Vísindamenn vita að frosið vatn er á tunglinu og hugsanlega gæti það hafa blandast lausum hlutum á yfirborðinu. Li og samstarfsmenn hans uppgötvuðu að blóðsteinarnir eru á þeirri hlið tunglsins sem alltaf snýr að jörðinni. Það getur því að þeirra mati bent til að myndun þeirra tengist jörðinni á einhvern hátt.
Fyrri rannsóknir hafa sýnt að sólvindar geta blásið smá súrefni frá jörðinni upp á yfirborð tunglsins. Þegar tungl er fullt er tunglið í segulsviði jarðarinnar sem virkar sem skjöldur fyrir sólvindinum. Þannig lokar segulsviðið fyrir 99% af sólvindinum, þegar tungl er fullt, áður en hann nær til tunglsins. Það er því stutt tímabil í hverjum mánuði sem ryðferlið gæti átt sér stað en það gerist þá mjög hægt og tekur milljarða ára.