Veltan á öðrum ársfjórðungi var 230 milljónir dollara sem er 141% aukning frá sama tíma í fyrra. Financial Times hefur eftir Mark Smith, forstjóra Smith & Wesson, að mikil aukning í eftirspurn eftir skotvopnum sé á margan hátt fordæmalaus.
Sala á vopnum eykst venjulega í aðdraganda forsetakosningar því kaupendur vilja tryggja sig gagnvart hugsanlegum þrengingum á reglum um skotvopnaeign sem stjórnmálamönnum gæti dottið í hug að innleiða. Einnig má skýra söluaukninguna núna að hluta með þeim óróleika sem er í bandarísku samfélagi og ekki síst í ljósi krafna um að fjárframlög til lögreglunnar verði minnkuð eða hún jafnvel alveg lögð niður.
„Að sjálfsögðu er hluti af söluaukningunni tengdur ótta við hertar reglur um skotvopn en stór hluti af eftirspurninni er frá fólki sem er óttast um eigið öryggi. Það byrjaði með heimsfaraldri kórónuveirunnar og hélt áfram með samfélagsóróanum,“
sagði Smith.
Tölur frá alríkislögreglunni FBI sýna að vopnaeign almennings hefur aukist. FBI sér um svokallaða bakgrunnskannanir á þeim sem vilja kaupa skotvopn. Allt stefnir í að metið frá síðasta ári verði slegið en þá voru gerðar 28,4 milljónir slíkra kannana. Í ágúst á þessu ári var aukningin 51% miðað við sama tíma í fyrra.