Sky skýrir frá þessu. Hópurinn Green Drone, sem berst fyrir að neysla kannabisefna verði gerð algjörlega refsilaus, hafði tilkynnt á Telegram síðu sinni að að nú væri tíminn runninn upp.
„Er það fugl? Er það flugvél? Nei, það er Green Drone að senda þér frítt kannabis af himni ofan,“
Skrifuðu samtökin á Telegram.
Talsmenn lögreglunnar segja að henni hafi tekist að finna tugi poka með kannabis í. Á myndum, sem lögreglan birti, sést það sem virðist vera kannabis í pokunum.
Maariv fréttasíðan, sem birti myndir af dróna sleppa pokunum yfir torginu, sagði að vegfarendur hafi náð einhverjum pokum áður en lögreglan kom á vettvang. Á myndum má sjá fólk fara yfir fjölfarnar götur til að komast að pokum sem höfðu endað á þeim.
Neysla á kannabis í lækningaskyni er heimil í Ísrael en önnur neysla er óheimil en þó að mestu refsilaus.