Málið snýst um það sem má kalla kaldrifjaða aftöku á tveimur Svíum, 21 og 23 ára, á bílastæði í Herlev síðdegis þann 25. júní á síðasta ári. Þeir voru skotnir til bana með AK-47 riffli og skammbyssu. Annar þeirra var skotinn 19 sinnum. Þriðji maðurinn lifði árásina af.
Um uppgjör á milli sænsku glæpagengjanna Dödspatrulle og Shottaz frá Rinkeby í Stokkhólmi var að ræða. Átök þessara glæpagengja hafa kostað 9 manns lífið síðan 2015 að sögn sænsku lögreglunnar.
Átök og umsvif glæpagengja hafa verið mikið til umfjöllunar bæði í Danmörku og Svíþjóð undanfarin misseri enda eru þau umfangsmikil og þau víla ekki fyrir sér að myrða fólk. Dönum hefur þó gengið mun betur að eiga við þessi gengi en í Danmörku er tekið mjög fast á þeim og afbrotum þeirra. Til dæmis er sérstakt lagaákvæði í hegningarlögunum sem heimilar að refsing sé tvöfalt þyngri en ella ef afbrotið tengist starfsemi skipulagðra glæpasamtaka.
Meðal þeirra fimm, sem voru dæmdir á föstudaginn, eru tveir ungir menn sem voru aðeins 17 ára þegar morðin voru framin. Þegar sænska lögreglan kynnti öðrum þeirra að hann yrði sóttur til saka í Danmörku, samkvæmt dönskum hegningarlögum, brast hann í grát hefur Svenska Dagbladet eftir heimildarmanni í lögreglunni.
Ástæðan fyrir grátinum? Hinn mikli munur á hvernig tekið er á svona málum í þessum tveimur nágrannaríkjum og að í Danmörku njóta ungmenni, sem fremja afbrot, ekki sömu niðurfellingu af refsingu og í Svíþjóð.
Málið hefur vakið upp miklar umræður í Svíþjóð og margir spyrja sig hvernig standi á því að danska réttarvörslukerfið geti fengið harðsvíraðan meðlim í sænsku glæpagengi til að gráta? Á sama tíma hlæi sænskir glæpamenn að sænska réttarvörslukerfinu.
Það sem kallaði grátinn fram hjá þessum harðsvíraða sænska glæpamanni var munurinn á þeirri refsingu sem hann mátti búast við að fá í Danmörku eða Svíþjóð. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir sinn þátt í morðunum. Í Svíþjóð hefði hann sloppið með miklu mildari dóm vegna ungs aldurs síns. Þar er reglan sú að þeim mun yngri sem afbrotamaðurinn er, þeim mun meiri niðurfellingu fær hann af refsingunni. 17 ára afbrotamaður fær 55 til 65% minni refsingu en 21 árs fyrir sama afbrotið. Þetta veldur því að glæpagengin nota oft ungmenni til að sinna skítverkum. Í Danmörku er engin föst regla um mildari refsingu vegna ungs aldur en dómstólum er heimilt að taka tillit til ungs aldurs við ákvörðun refsingar. Það er þó ákvæði sem kveður á um að hámarksrefsing vegna afbrota yngri en 18 ára sé 20 ára fangelsi en það var einmitt refsingin sem tveir Svíanna fengu á föstudaginn.
„Eins og staðan er núna stæra glæpamenn sig af að þeir noti ungmenni sem fá að hámarki fjögurra ára dóm á lokaðri stofnun í refsingu,“
Sagði Lise Tamm, aðalsaksóknari í málum alþjóðlegra- og skipulagðra glæpasamtaka, í samtali við Aftonbladet.
2018 var 24 ára meðlimur glæpagengis skotinn til bana á pizzustað í Rinkeby. Morðinginn var 16 ára meðlimur Dödspatrullen. Hann var dæmdur til þriggja ára vistunar á unglingaheimili.
„Af hverju segirðu þetta núna fyrst?“ sagði einn leiðtogi Dödspatrullen þegar saksóknari kynnti trompið sitt í réttarhöldunum yfir fimmmenningunum í Danmörku að sögn Expressen. Þetta tromp voru lífsýni úr flóttabíl morðingjanna.
Í Svíþjóð eru sönnunargögn meðhöndluð öðruvísi því þar er allt það sem dómstólar eiga að leggja mat á lagt fram í upphafi réttarhalda. Þetta þarf danska ákæruvaldið ekki að gera, það má sleppa því og kynna gögnin til sögunnar á síðari stigum réttarhalda. Það var einmitt það sem var gert í þessu máli og er óhætt að segja að þetta hafi komið meðlimum Dödspatrullen algjörlega í opna skjöldu.
Dómarnir voru þungir. Þeir tveir, sem voru 17 ára þegar morðin voru framin, voru dæmdir í 20 ára fangelsi. Hinir þrír, 20, 22 og 25 ára, voru allir dæmdir til þyngstu refsingar, lífstíðarfangelsi. Öllum fimm var auk þess vísað úr landi fyrir fullt og allt.
Það hefur borið á því undanfarin misseri að sænsku glæpagengin hafi flutt átök sín yfir til Danmerkur en nú er spurning hvort það dragi úr því í kjölfar þessara þungu dóma.