Pence sagði að Biden væri gagnslaus atvinnupólitíkus. Hann sagði að ef Bandaríkjamenn kjósi Biden sem forseta í stað Donald Trump þá verði það verst fyrir þá sjálfa.
„Hinn óþægilegi sannleikur er að maður mun ekki telja sig öruggan í Bandaríkjum Joe Biden,“
sagði Pence sem ávarpaði landsfundinn í gegnum fjarfundabúnað frá Fort McHenry í Baltimore í Maryland. Stærstu hluti fundarins fer fram í gegnum fjarfundabúnað vegna kórónuveirufaraldursins.
Joe Biden var þó ekki eina umræðuefni Pence sem samþykkti formlega og þakkaði fyrir tilnefninguna sem varaforsetaefni flokksins. Hann ræddi einnig um góðan árangur í efnahagsmálum, undir stjórn Trump, þar til kórónuveirufaraldurinn skall á.