Þessu heldur Stephanie Winston Wolkoff að minnsta kosti fram í nýrri bók sinni „Melania and Me“ sem kemur út síðar á árinu. Samkvæmt því sem fulltrúar bókaútgáfunnar Simon & Schuster og fréttamiðilsins HuffPost segja þá er Melania allt annað en sátt við eiginmann sinn og dóttur hans, Ivanka Trump.
„Melania og Stephanie Winston Wolkoff voru góðar vinkonur. En Wolkoff taldi Melania hafa svikið sig. Vináttunni lauk 2017. Nýja bókin er byggð á leynilegum hljóðupptökum,“
skrifaði Yashar Ali, blaðamaður hjá HuffPost, í fréttabréfi sínu á mánudaginn.
Enn hefur ekki komið fram hvað Melania á að hafa sagt um eiginmann sinn og stjúpdóttur. En ef marka má það sem forlagið segir þá eru það engin hrósyrði.
Melania verður ekki fyrsti fjölskyldumeðlimurinn til að segja skoðun sína á Trump-fjölskyldunni. Um síðustu helgi birti Washington Post mjög neyðarlegar hljóðupptökur þar sem Maryanne Trump Barry, systir forsetans, er mjög hreinskilin um bróður sinn.
„Hann lýgur. Hann er ekki með nein prinsipp. Bróðir minn er vondur,“
sagði hún meðal annars.
Nýja bókin heitir „Melania and Me: The Rise and Fall of My Friendship with The First Lady“. Í síðasta mánuði kom bókin „Too Much is Never Enough“, eftir Mary Trump, út svo ljóst er að áhugafólk um Trump-fjölskylduna hefur úr nægu lesefni að moða næstu vikurnar.