Hann lét þessi ummæli falla eftir að embættismenn í Hvíta húsinu viðruðu hugsanlega möguleika á gefa út neyðarheimild fyrir bóluefni áður en lokatilraunum með það er lokið. CNN skýrir frá þessu.
Fauci sagði í samtali við Reuters að „það eina sem þú vilt ekki sjá er að bóluefni verði samþykkt til notkunar áður en þú hefur skýr merki um virkni þess.“
Hann sagði jafnframt að hugsanleg hætta af slíku ótímabæru samþykki væri að það yrði erfitt, ef ekki ómögulegt fyrir aðra lyfjaframleiðendur að fá fólk til að taka þátt í tilraunum þeirra.
Unnið er að þróun nokkurra bóluefna í Bandaríkjunum og eru lyfjafyrirtæki að undirbúa framleiðslu þeirra samhliða tilraunum með þau til að þau séu tilbúin til notkunar ef þau virka. Þannig er hægt að hefja dreifingu þeirra samstundis.
Donald Trump, forseti, hefur lofað að bóluefni verði tilbúið fyrir árslok en sérfræðingar, sem CNN ræddi við, segja óraunhæft að það verði að veruleika.