QAnon er samsæriskenning sem styður Donald Trump. Að auki lokaði Facebook mörg þúsund aðgöngum, síðum og hópum til að reyna að stemma stigum við hatursræðu tengdri QAnon, pólitískum öfgamönnum og samtökum á borð við Antifa.
Allar þessar síður og aðgangar tengjast QAnon sem hefur vaxið hratt síðan heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á. BBC segir þeir sem aðhyllast samsæriskenningu QAnon telji að alþjóðleg elíta vinni gegn Donald Trump og að það séu barnaníðingar, sem stunda mansal, sem stýri þessari elítu og ætli að bola Trump úr Hvíta húsinu. Stuðningsmenn QAnon vona að baráttan leiði til þess heimsbyggðin átti sig á því dag einn að leynileg samtök stýri heiminum og að þekkt fólk á borð við Hillary Clinton verði handtekið og tekið af lífi.
Facebook skýrði einnig frá því á miðvikudaginn að fyrirtækið ætli að grípa í taumana hvað varðar síður, hópa og Instagramaðganga sem tengjast vopnuðum hópum í Bandaríkjunum og gegn stjórnleysingjum sem styðja ofbeldisfull mótmæli.
Alríkislögreglan, FBI, hefur flokkað QAnon sem hugsanlega ógn við öryggið í landinu þar sem hryðjuverkahætta geti stafað frá stuðningsmönnum samsæriskenningarinnar.
Einn af stuðningsmönnum kenningarinnar er Marjorie Greene sem er í þingframboði í haust fyrir Repúblikanaflokkinn. Á miðvikudaginn þakkaði Donald Trump QAnon fyrir stuðninginn.
„Ég veit ekki svo mikið um hreyfinguna. Ég veit að þeim líkar mjög vel við mig og það kann ég að meta.“
Sagði forsetinn.