„Takk öll sömul. Þetta skiptir öllu fyrir mig og fjölskyldu mína. Við sjáumst á fimmtudaginn.“
Sagði hinn 77 ára Biden.
Michelle Obama, eiginkona Barack Obama fyrrum forseta, var meðal þeirra sem ávörpuðu þingið á fyrsta degi þess og í gær var röðin komin að Bill Clinton, fyrrum forseta, að ávarpa þingið. Eins og Obama veittist hann að Donald Trump, forseta, og viðbrögðum hans við heimsfaraldri kórónuveirunnar.
„Á tímum sem þessum ætti skrifstofa forsetans að vera stjórnstöð. Þess í stað er hún miðpunktur óveðursins. Það ríkir ekkert nema ringulreið. Það er aðeins eitt sem breytist aldrei – það hversu fast hann stendur við að taka ekki ábyrgð og varpa sökinni á aðra.“
Sagði Clinton.
Þinginu lýkur á morgun og þá verður hápunkturinn þakkarræða Joe Biden fyrir að hafa verið útnefndur forsetaframbjóðandi flokksins.