Aðeins 12 mínútum eftir að vélin hóf sig á loft þann 12. ágúst 1985 rifnaði hluti af stéli vélarinnar af, mikið þrýstingsfall varð í vélinni og flugmennirnir misstu stjórn á henni. Hún hrapaði niður í Gunmas fjöllin norðvestan við Tókýó.
Það vakti því undrun og jafnvel óhug þegar flugnúmerið JL 123 sást á mörgum flugratsjám þann 5. ágúst. Var sú vél á leið til Narita í austurhluta Japan.
Málið var mikið rætt á Twitter og undruðust margir af hverju Japan Airlines væri byrjað að nota flugnúmerið aftur og ýmsar samsæriskenningar fóru á kreik. Ein af þeim var að þessi „endurkoma“ JL 123 tengdist Obon hátíðinni í Japan en hún fer fram 13. til 16. ágúst en á þessum tíma snúa sálir hinna látnu aftur og umgangast hina lifandi.
En eins og með svo margt annað reyndist skýringin vera öllu eðlilegri og ekki svona yfirnáttúruleg.
Japan Airlines staðfesti að flugnúmerið hefði verið tekið í notkun á nýjan leik en að um mistök hefði verið að ræða. Tæknimaður hefði ekki vitað að ekki mætti nota númerið. Nú á að vera búið að sjá til þess að þetta endurtaki sig ekki.
Þær fjórar, sem lifðu flugslysið af, sátu allar vinstra megin, aftast í vélinni. Það var eini hluti hennar sem skemmdist ekki. Þetta voru 12 ára stúlka, flugfreyja á frívakt og mægður.