Fyrra met var frá 31. júlí en þá greindust 292.000 smit.
Nú hafa tæplega 21,4 milljónir smita greinst í heiminum og rúmlega 769.000 hafa látist af völdum COVID-19. Þetta kemur fram í tölum frá Johns Hopkins háskólanum.
Af þeim 21,4 milljónum, sem hafa greinst með veiruna, hafa rúmlega 13 milljónir náð bata.
Bandaríkin, Brasilía og Indland eru þau ríki sem verst hafa farið út úr faraldrinum til þessa ef eingöngu er horft til heildarfjölda smitaðra. Í hverju þessara ríkja voru rúmlega 100.000 smit staðfest síðustu sjö daga.
Talið er að fjöldi smitaðra sé mun hærri en opinberar tölur segja til um því mikill munur er á milli einstakra ríkja á hvernig þau haga sýnatökum.
Smitum hefur víða farið fjölgandi að undanförnu og er Evrópa þar engin undantekning. Rúmlega 3.300 smit greindust í Frakklandi í gær og hafa ekki verið fleiri á einum degi síðan í apríl. Frönsk stjórnvöld hafa því gripið til hertra aðgerða til að reyna að hemja útbreiðslu veirunnar. Dönsk stjórnvöld hafa einnig ákveðið að frá og með næsta laugardegi þurfi allir þeir sem nota almenningssamgöngur að nota andlitsgrímur.