Nafnið á nýju tegundinni er dregið af loftgötum sem fornleifafræðingarnir fundu í beinunum en þau eru úr hnakka, baki og hala. Þessi loftgöt, sem eru einnig á fuglum nútímans, virka sem framlenging af lungunum og eru hluti að góðu öndunarkerfi. En götin gerðu dýrin einnig léttari og því hafa bein risaeðlunnar verið viðkvæm.
Það var Robin Ward, áhugamaður um fornleifafræði, sem fann fyrstu beinin þegar hann var með fjölskyldu sinni á ferð um Isle of Wight. BBC hefur eftir honum að það hafi verið mjög ánægjulegt að finna beinin. Tveir aðrir áhugamenn um fornleifafræði fundu síðan sitthvort beinið.
Chris Barker, sem stýrði rannsókn á beinunum, segir að um sjaldgæfa uppgötvun sé að ræða. Það sé ekki oft sem risaeðlubein frá miðjum krítartímanum finnast í Evrópu. Talið er að dýrið, sem beinin eru úr, hafi lifað rétt norðan við staðinn þar sem beinin fundust.