fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Rússar stela sviðsljósinu – Segjast verða tilbúnir með bóluefni gegn kórónuveirunni um miðjan ágúst

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 30. júlí 2020 06:49

Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Segja má að Rússar hafi stolið sviðsljósinu síðustu klukkustundir í umræðunni um heimsfaraldur kórónuveirunnar því þeir segjast verða tilbúnir með bóluefni gegn veirunni um miðjan ágúst. CNN segir að Rússar stefni á að 10. ágúst, eða jafnvel fyrr, verði nýtt bóluefni tilbúið til samþykktar. CNN fékk þetta staðfest hjá fjölda rússneskra embættismanna og fólki sem tengist vinnu við bóluefnið.

„Þetta er Spútnik-augnablik.“

Er haft eftir Kirill Dmitriev forstjóra Russina Direct Investment Fund sem fjármagnar vinnuna við bóluefnið. Hann vísar þarna til Spútnik gervihnattarins sem var sendur á braut um jörðina 1957 en með því tóku Sovétríkin forystu í geimkapphlaupinu því þau voru fyrsta landið sem náði þessum áfanga.

„Bandaríkjunum brá í brún þegar þau heyrðu hljóðin frá Spútnik. Það sama á við um þetta bóluefni. Rússland vill koma fyrst í mark.“

Sagði Dmitriev.

Fréttin um rússneska bóluefnið kemur á sama tíma og Donald Trump, Bandaríkjaforseti, stærir sig af að barátta hans fyrir þróun bóluefnis sé meiri og betri en hjá nokkrum öðrum og að virkt bóluefni verði tilbúið fyrir Bandaríkjamenn í janúar á næsta ári.

Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada hafa margoft varað við að rússneskir tölvuþrjótar hafi beint spjótum sínum að vísindamönnum og samtökum sem koma að þróun bóluefnis. Rússar hafa vísað þessum ásökunum á bug.

En fréttirnar um rússneska bóluefnið hafa vakið upp spurningar. Margir velta fyrir sér hvort bóluefnið, sem er þróað af Gamaleya Institute í Moskvu, sé bæði áhrifaríkt og öruggt og hvort vísindamenn hafi hoppað yfir mikilvæg skref í þróun þess vegna pólitísks þrýstings.

Rússar hafa ekki enn birt nein vísindaleg gögn um prófanir á bóluefninu og gagnrýnendur hafa áhyggjur af að ekki hafi verið gerðar réttar tilraunir með það á fólki.

Rússneskir heimildarmenn segja að bóluefnið verði sent hratt í gegnum allt viðurkenningar- og samþykktarferlið vegna umfangs heimsfaraldursins og þeirra erfiðleika sem eru í Rússlandi við að ná tökum á faraldrinum. Þar í landi hafa rúmlega 820.000 smit greinst og rúmlega 13.600 látist ef marka má opinberar tölur.

Varnarmálaráðuneyti landsins segir að hermenn hafi verið valdir sem fyrstu sjálfboðaliðarnir til prófana á bóluefninu.

Tilraunir með bóluefnið eru enn á öðru stigi en því á að ljúka 3. ágúst. Þá hefst þriðja stig sem fer fram samhliða því að heilbrigðisstarfsfólk verður bólusett.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni

Það er farið að hægja á snúningi innri kjarna jarðarinnar – Það gæti breytt daglengdinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?

Er sársaukaþröskuldur kvenna hærri en karla?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir

Skammbyssur sem Napóleon ætlaði að skjóta sig með seldust fyrir 255 milljónir
Pressan
Fyrir 4 dögum

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt

Var á dauðaganginum í 45 ár – Vonast nú til að hreinsa nafn sitt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum

Hyggjast verðlauna aðflutta með milljónum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts

Ítalskur bær neyðist til að vísa ferðamönnum á brott vegna vatnsskorts
Pressan
Fyrir 5 dögum

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort

Banki þvingaði fólk til að kaupa óþarfa tryggingar, stofnaði yfirdátt í þeirra óþökk, færðu til peninga og sendu þeim óumbeðin greiðslukort
Pressan
Fyrir 6 dögum

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin

Prestur barði eiginkonu sína fyrir að vera heppin