Sky skýrir frá þessu. Fram kemur að Johnson hafi heimsótt læknastofu í Lundúnum fyrir helgi þar sem hann ræddi við starfsfólkið.
„Það eru allir þessir andstæðingar bólusetninga núna. Þeir eru klikkaðir, þeir eru klikkaðir.“
Sagði hann við hjúkrunarfræðinga á stofunni. Johnson ræddi einnig útvíkkun bólusetningaráætlunar yfirvalda vegna hinnar hefðbundnu inflúensu sem herjar á hverjum vetri. Stefnt er að því að bólusetja tvöfalt fleiri en áður.
Johnson sagðist sannfærður um að um mitt næsta ár verði Bretar komnir vel áleiðis út úr heimsfaraldri kórónuveirunnar.
„Það eru erfiðir tímar fram undan í efnahagslífinu. En ég hef fulla trú á að við munu ná okkur á strik og verða öflugri en nokkru sinni áður.“
Sagði hann.
Heimsfaraldurinn hefur mánuðum saman nær einokað breska stjórnmálaumræðu en rúmlega 40.000 manns hafa látist af völdum veirunnar í Bretlandi.