Setningin “Something traumatic happened that changed my life, check” er sívinsæl á TikTok. Þegar fjórir unglingar frá Seattle ætluðu að gera TikTok myndband, fundu þeir ferðatösku á ströndinni, sem fékk þá til að nota þessa setningu.
Unglingarnir höfðu notað smáforritið Ranonautica, sem sendir notendur þess til staða, sem valdir eru af handahófi, til þess að kynnast nærumhverfi sínu betur. Forritið sendi þá til Duwamish Head, þar sem taskan fannst. Þeir vonuðust til þess að í töskunni væru peningar.
Á upptökunni heyrist stúlkurödd hrópa: “Opnaðu hana! Það er ógeðsleg lykt af henni, yo”. Önnur stúlka potar í töskuna með priki og hlær, en svo gerir hópurinn sér grein fyrir því að kannski sé eitthvað annað en peningar í töskunni.
Á næstu upptöku sést hvar ein stúlknanna hringir í neyðarlínuna og þegar fjöldi lögreglubíla og slökkviliðsbíll koma á staðinn. Því næst er sýnd fréttatilkynning frá lögreglunni í Seattle, þar sem tilkynnt er um líkfund.
Í fréttatilkynningunni segir lögreglan í Washington að síðastliðinn föstudag hafi verið haft samband við lögregluna og tilkynnt um grunsamlega tösku sem fundist hafi við ströndina. Í fréttatilkynningunni kom ekki fram hver hefði látið lögregluna vita af töskunni, en fram kemur að önnur taska hafi fundist í sjónum. Lögreglan staðfestir að í töskunum hafi verið líkamsleifar og að þær hafi verið færðar til rannsóknar.