Daily Mail skýrir frá þessu. Í síðustu viku var kveðinn upp dómur í Frakklandi í öðru álíka hörmulegu máli þar sem Breti var skotinn af Frakka. Lucas Clerc, 24 veiðimaður, var dæmdur í eins árs fangelsi fyrir að hafa skotið hinn 34 ára Marc Sutton til bana en hann var í reiðhjólatúr í Frönsku Ölpunum.
Clerc skaut hann af mjög löngu færi. Yfirvöld gagnrýndu strax veiðimennina fyrir að hafa ekki sett upp merkingar um að veiði stæði yfir á svæðinu. Einnig var gagnrýnt að þeir voru ekki með staðkunnugan leiðsögumann með.