Miðað við túlkanir á spádómum hans þá mun það meðal annars bera til tíðinda á næsta ári að örflögur verða græddar í heila hermanna en það er ekki það versta þegar upp verður staðið. Hann spáði einnig að sögn fyrir um að loftsteinar, sólstormar og hungursneyð muni fara illa með mannkynið.
Sjálfskipaðir sérfræðingar í spádómum hans segja að hann hafi einnig spáð að mjög öflugur jarðskjálfti ríði yfir Kaliforníu og að rússneskir vísindamenn þrói veiru sem breyti fólki í uppvakninga. Þessi veira muni að lokum gera út af við mannkynið.
Áður hefur því verið haldið fram að Nostradamus hafi spáð fyrir um valdatöku Adolf Hitler í Þýskalandi, hrylling síðari heimsstyrjaldarinnar og smíði kjarnorkusprengjunnar. Hann er einnig sagður hafa séð morðið á John F. Kennedy fyrir og hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin í september 2001.
Mirror segir að samkvæmt því sem nú er lesið úr spádómum hans muni tækniþróunin ná nýjum hæðum á næsta ári þegar örflögur verði græddar í heila hermanna. Einnig er hann sagður hafa spáð fyrir um að Rússar þrói vopn, sem inniheldur veiru, sem breytir fólki í uppvakninga og útrýmir mannkyninu. Öflugir sólstormar koma einnig við sögu og er hann sagður hafa spáð því að þeir valdi miklu tjóni á jörðinni og valdi miklum fólksflutningum og stríðsátökum. Einnig mun hungursneyð herja á mannkynið. En þar með eru hörmungar næsta árs ekki alveg upptaldar því hann er einnig sagður hafa spáð því að loftsteinn skelli á jörðinni og að öflugur jarðskjálfti ríði yfir Kaliforníu þann 25. nóvember 2021.