En ekki nóg með það því margir starfsmenn hafa smitast af veirunni: „Stór hluti af starfsfólkinu er úr leik. Sumar deildir berjast við að hafa opið. Starfsfólkið, sem eftir er, tekur fleiri og fleiri vaktir án þess að fá aukalega uppbót,“ skrifaði hann.
Hann telur að sænska heilbrigðiskerfið sé á þröskuldi neyðarástands þar sem þörfin fyrir umönnun og meðferðir er meiri en geta kerfisins. „Fólk er veikt. Fólk þjáist. Fólk er að deyja,“ skrifaði hann.
https://www.facebook.com/mattias.bergstrom.165/posts/10158783305296411
Hann er ekki einn um að segja að sænska heilbrigðiskerfið sé að kikna undan álaginu því fyrr í vikunni sagði Matilda Nygren, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Nya Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi, frá ástandinu á bráðamóttökunni: „Ég sé vinnufélaga gráta daglega. Af reiði, af vonbrigðum og sorg. Yfir að geta ekki sinnt sjúklingunum nægilega vel. Að geta ekki sinnt sjálfum sér eða sínu nánustu nægilega vel. Margir hafa sagt upp. Margir eru í veikindaleyfi,“ sagði hún.
Það er ekki að sjá að það sé ljós fyrir enda ganganna og segir Björn Eriksson, yfirmaður heilbrigðismála í Stokkhólmi, að heilbrigðisstarfsfólk þurfi væntanlega að berjast áfram allan janúar. „Ástandið er mjög slæmt núna með næstum 800 sjúklinga. Það lítur út fyrir að þetta muni vara lengur en það gerði í vor því það dregur ekki úr útbreiðslu smita. Við getum ekki búist við neinu öðru en að fleiri þurfi aðstoð,“ sagði hann í samtali við Expressen.