Fyrir okkur Frónbúa er sá galli á þessu að krafa er gerð um að viðkomandi búi í Bandaríkjunum. Það er kannski hægt að redda því með að flytja í snarhasti vestur um haf.
Reviews leitar að „Chief Holiday Cheermeister“ sem á að horfa á fjölda góðra, og síður góðra, jólamynda í desember. Auk launa fær viðkomandi ársaðgang að Netflix, Hulu, Disney+, Amazon Prime, HBO Max, Apple TV+ og Hallmark Movies Now. Það er því enginn hætta á að viðkomandi verði í vandræðum með að finna eitthvað til að horfa á þegar jólamánuðinum lýkur.
Það eina sem umsækjendur þurfa að leggja til er tölva eða sjónvarp til að njóta myndanna á. Síðan þarf að horfa á 25 myndir á 25 dögum sem á nú að vera mjög yfirstíganlegt.