Í apríl var sveitarfélaginu tilkynnt að Renate hefði arfleitt það að eignum sínum sem voru bankainnistæða, hlutabréf og önnur verðmæti, þar á meðal hús. Systir hennar átti upprunalega að erfa eigur hennar en hún lést á undan systur sinni að sögn staðarblaðsins Hessenschau. CNN skýrir frá þessu.
„Ég hélt fyrst að þetta gæti ekki verið. Ég hélt að komma hefði verið sett á rangan stað, eitthvað væri bogið við þetta,“ sagði Bernd Heine, bæjarstjóri, í samtali við Hessenschau.
Sú kvöð er á arfinum, sem er að andvirði sem nemur um 940 milljónum íslenskra króna, að sveitarfélagið verður að nota hann í „innviði og samfélagslega aðstöðu“.