Samkvæmt rússneskum lögum er ekki hægt að saksækja forseta landsins fyrir glæpi framda í embættistíð þeirra. Með nýja frumvarpinu er ætlunin að lengja þessa friðhelgi svo hún nái yfir lengra tímabil, í raun allt líf forsetanna. CNN skýrir frá þessu.
Þingmennirnir, sem lögðu frumvarpið fram, eru þeir sömu og komu umdeildum stjórnarskrárbreytingum Pútíns í gegn fyrr á árinu.
„Að kjörtímabili loknu á aðili sem þessi rétt á að geta treyst á ákveðna vernd og lagalega tryggingu sem er ekki síðri en sú sem hann naut á meðan hann gegndi forsetaembættinu,“ sagði Andrey Klishas, einn þingmannanna, í samtali við TASS.
„Frumvarpið er trygging gegn ástæðulausum saksóknum á hendur fyrrum þjóðhöfðingjum og um leið viðurkenning á mikilvægi embættisins,“ sagði Klishas einnig.
Frumvarpið þarf að fara í gegnum þrjár umræður í neðri deild þingsins, síðan fer það til efri deildarinnar og því næst þarf Pútín að undirrita það til þess að það verði að lögum. Tveir þriðju hlutar þingmanna þurfa að samþykkja frumvarpið áður en það fer til Pútín.
Eitt af fyrstu embættisverkum Pútín, þegar hann tók við völdum 2000, var að veita Boris Yeltsin, forvera sínum, friðhelgi. Yeltsin valdi sjálfur Pútín sem eftirmann sinn.
Frumvarpið hefur ýtt undir vangaveltur um að Pútín hyggist draga sig í hlé en hann getur í raun setið á forsetastól til 2036, þökk sé umdeildum stjórnarskrárbreytingum sem voru samþykktar í sumar. Dmitry Peskov, talsmaður Pútín, sagði á föstudaginn að Pútín væri við hestaheilsu og hefði engin áform um að draga sig í hlé.