Eiginkona hans, Lindsay, á von á barni seinnipartinn í desember að því er RIA fréttastofan segir.
Snowden, sem er 37 ára, flúði frá Bandaríkjunum eftir að hann lak miklu magni gagna árið 2013 sem sýndu hvernig starfsemi US National Security Agency fór fram en hann var verktaki hjá stofnuninni.
Bandarísk yfirvöld hafa alla tíð síðan viljað fá Snowden til Bandaríkjanna þar sem hann á ákæru fyrir njósnir yfir höfði sér.
„Eftir áralangan aðskilnað frá foreldrum okkar höfum við enga löngun til að vera aðskilin frá syni okkar. Það er ástæðan fyrir að á þessum tímum heimsfaraldurs og lokaðra landamæra sækjum við um tvöfaldan ríkisborgararétt, bandarískan og rússneskan,“
skrifaði Snowden á Twitter.
Hann hefur nú þegar fengið varanlegt dvalarleyfi í Rússlandi en það fékk hann í síðasta mánuði að sögn lögmanns hans. Það er mikilvægt skref í áfanganum að ríkisborgararétti.
Snowden lætur lítið fyrir sér fara í Rússlandi. Hann hefur dásamað náttúrufegurð landsins og hversu hjartahlý þjóðin er. Hann notar samfélagsmiðla öðru hvoru til að gagnrýna yfirvöld.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sagði í ágúst að hann væri að íhuga að náða Snowden en ekkert meira hefur heyrst af þeim hugleiðingum.