The Guardian skýrir frá þessu. Marugov var umsvifamikill í rekstri kjötvinnslufyrirtækja og var oft kallaður „pylsukóngurinn“.
Konunni tókst að sleppa frá ræningjunum og hafa samband við lögregluna. Marugov var látinn þegar fyrstu lögreglumennirnir komu á vettvang.
Lögreglan segir að lásboginn, morðvopnið, hafi fundist á vettvangi. Ræningjarnir flúðu af vettvangi í bíl. Hann fannst síðar í úthverfi Istra, sem er bær nærri Moskvu.
Í fyrradag tók rannsókn málsins síðan óvænta stefnu. Þá gerði lögreglan húsleit á heimili eins hinna grunuðu en þar var sá grunaði ekki en hins vegar var eldri maður þar og var hann handjárnaður við rúm. Lögreglan segir að honum hafi verið haldið föngnum og neyddur til að skrifa undir framsal á íbúð sinni til annarra án þess að greiðsla kæmi fyrir. Þetta bendir að mati lögreglunnar til að skipulögð glæpasamtök standi á bak við bæði morðið á Marugov og yfirtöku íbúðarinnar.
Lögreglan hefur handtekið tvo menn vegna málsins en einn gengur laus.