fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Pressan

Magn mótefnis gegn kórónuveirunni dregst hratt saman eftir smit

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 4. nóvember 2020 17:01

COVID-19 sýni rannsökuð. Mynd:EPA-EFE/STEPHANIE LECOCQ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að magn mótefna gegn kórónuveirunni, sem veldur COVID-19, minnki „frekar hratt“ eftir að fólk smitast. Mótefni eru stór og mikilvægur hluti af vörnum ónæmiskerfis líkamans og koma í veg fyrir að veiran komist inn í frumur líkamans.

BBC skýrir frá þessu. Fram kemur að vísindamenn við The Imperial College London hafi komist að því að þeim sem mældust með mótefni hafi fækkað um 26% frá júní og fram í september. Þeir segja að ónæmi fólk virðist því minnka og hætta sé á að fólk smitist aftur af veirunni.

350.000 Englendingar hafa takið þátt í REACT-2 rannsókninni en í henni eru mótefni gegn veirunni mæld. Í fyrstu lotu hennar, sem stóð yfir síðustu dagana í júní og fyrstu dagana í júlí, mældust 60 af hverjum 1.000 með mótefni. Í september lotunni mældust aðeins 44 af hverjum 1.000 með mótefni. Þetta bendir til að fólki, með mótefni, hafi fækkað um rúmlega fjórðung frá því í sumar og fram á haust.

„Ónæmið minnkar hratt, nú eru aðeins þrír mánuðir síðan við tókum fyrstu sýnin og nú þegar sjáum við 26% samdrátt í mótefnum,“

er haft eftir Helen Ward, prófessor, sem vann að rannsókninni.

Samdrátturinn var meiri hjá fólki eldra en 65 ára en í yngri hópum og það sama átti við hjá þeim sem fengu engin sjúkdómseinkenni.

Fjöldi þeirra heilbrigðisstarfsmanna, sem eru með mótefni, reyndist vera frekar mikill og telja vísindamennirnir að það geti tengst því að þeir séu reglulega útsettir fyrir veirunni.

Ekki er enn ljóst hvaða áhrif það hefur á ónæmi að mótefni minnka. Aðrir hlutar ónæmiskerfisins, til dæmis T-frumur, gegna einnig mikilvægu hlutverki í vörnum líkamans. T-frumur drepa sýktar frumur og fá aðrar frumur í ónæmiskerfinu til aðstoðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Neglur urðu morðingja Unu að falli

Neglur urðu morðingja Unu að falli
Pressan
Fyrir 2 dögum

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri

Snarráður 12 ára drengur sló innbrotsþjóf í klofið með hamri
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kínverjar herða tökin – Ekkert sleppur út

Kínverjar herða tökin – Ekkert sleppur út
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kramdi fiðrildi og sprautaði sig – Mátti þola kvalafullan dauðdaga á sjö dögum

Kramdi fiðrildi og sprautaði sig – Mátti þola kvalafullan dauðdaga á sjö dögum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Frændi meinta raðmorðingjans átti sér líka myrka fortíð – Arkitekt dauðans og presturinn frá helvíti

Frændi meinta raðmorðingjans átti sér líka myrka fortíð – Arkitekt dauðans og presturinn frá helvíti