Mike Ryan, sem er helsti sérfræðingur stofnunarinnar í viðbrögðum við stórum áföllum og hörmungum, sagði í viðtali við írsku sjónvarpsstöðina RTE í gær að það sé mjög líklegt að lífið komist nokkurn veginn í fyrra horf á næsta ári. „Ég held að það sé mjög, mjög líklegt að við getum snúið aftur til lífshátta eins og við þekkjum þá en við verðum áfram að gæta vel að hreinlæti og félagsforðun,“ sagði hann.
Ummæli hans koma í kjölfar jákvæðra frétta af bóluefnum gegn kórónuveirunni. WHO segir að bóluefni muni samt sem áður ekki verða til þess að hægt sé að útrýma veirunni beint. „Bóluefni er ekki bein ávísun á ekkert COVID-19. Með því að bæta bóluefni við núverandi aðgerðir fáum við marga möguleika til að snúa smitkúrvunni, forðast lokanir og til að ná stjórn á faraldrinum,“ sagði Ryan.