Dýraverndunarsamtök hafa bent á að önnur tískufyrirtæki séu hætt að nota húð framandi dýra vegna þess hversu grimmdarlegt það er. The Guardian skýrir frá þessu. Lögmenn dýraverndunarsamtaka sögðu blaðinu að þeir hafi áhyggjur af velferð krókódílanna og segja að það sé ekki „lengur í tísku“ að rækta dýr til að nota þau í lúxusvarning.
Northern Territory gegnir stóru hlutverki í að sjá heimsbyggðinni fyrir húð krókódíla en þar eru fyrir margir krókódílabúgarðar í eigu stórra tískuvörufyrirtækja. Stjórnvöld í ríkinu hafa nú þegar veitt heimild fyrir nýja búgarðinum. Þar er reiknað með um 30 starfsmönnum og að byrjað verði með 4.000 krókódíla en þeim verði fjölgað upp í 50.000 með tímanum. ABC skýrir frá þessu.