Samkvæmt frétt AP þá voru atkvæðin á minniskorti sem hafði ekki verið tekið með í fyrstu talningunni. Á minniskortinu voru 2.755 atkvæði og hafa þau nú verið talin. Donald Trump fékk 1.577 atkvæði og Joe Biden 1.128. Restin fór til annarra frambjóðenda.
Áður en þessi atkvæði voru talin var Biden með um 14.000 atkvæða forskot í ríkinu og því breyta þau væntanlega engu um niðurstöðu kosninganna frekar en endurtalningin.
Trump hefur ekki enn viðurkennt ósigur sinn og þráast við og reynir að ríghalda í forsetastólinn. En allt stefnir í að hann flytji út úr Hvíta húsinu í janúar. Biden hlaut 306 kjörmenn í kosningunum og Trump 232. 16 kjörmenn voru í boði í Georgíu.