Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan er veggfóðrið ansi óvenjulegt og eiginlega bara óhugnanlegt. Margir spyrja sig af hverju fólk setji veggfóður sem þetta, sem sýnir litla stúlku með bangsa í fanginu standa í dyragætt, á stofuvegg.
Ekki kemur fram í auglýsingunni hvort myndin sé af fyrrum íbúa í húsinu eða hvort það sé einhver önnur ástæða fyrir vali á veggfóðri. Það má telja líklegt að næsti eigandi hússins fjarlægi veggfóðrið, ef hann rífur ekki bara húsið til grunna en það er ekki í góðu standi og vægast sagt mikil vinna fram undan ef hressa á upp á það.
Hér er hægt að sjá fleiri myndir af húsinu.