McEnany tók til máls á fréttamannafundinum og byrjaði að setja fram ótrúlegar ásakanir um kosningasvindl án þess að leggja fram svo mikið sem eina sönnun fyrir máli sínu. Þá sagði þulur Fox News að sjónvarpsstöðin gæti ekki með góðri samvisku haldið áfram útsendingu á fölskum ásökunum hennar sem hún hefði ekki sannað á nokkurn hátt.
Trump heldur því staðfastlega fram að hann hafi sigrað í forsetakosningunum og það er eflaust ekki til að bæta skap hans að Joe Biden hlaut miklu fleiri atkvæði en hann og setti raunar met hvað varðar fjölda atkvæða. En Trump reynir að ríghalda í forsetaembættið og hefur gert her lögmanna út til að reyna að fá dómstóla til að úrskurða niðurstöður kosninga í nokkrum ríkjum ólögmætar en sérfræðingar eru flestir sammála um að þessar tilraunir muni ekki bera neinn árangur.
Í nótt setti Trump fram nýja og ótrúlega samsæriskenningu í tengslum við það mikla samsæri sem hann telur vera í gangi og beinast að honum.
Eins og fram kom í fréttum í gær tilkynnti Pfizer lyfjafyrirtækið í gær að bóluefni þess gegn kórónuveirunni sýni rúmlega 90% virkni. Það gæti því farið svo að sigur gegn heimsfaraldri kórónuveirunnar sé ekki svo langt undan en heimsfaraldurinn hefur nú orðið rúmlega einni milljón manna að bana og haft gríðarleg áhrif á efnahagslíf heimsins.
En Trump sá samsæri í tengslum við þessa tilkynningu Pfizer og tjáði sig um málið á Twitter í nótt þar sem hann sagði að Demókratar og bandaríska lyfjastofnunin, FDA, hafi ekki viljað að bóluefni væri tilbúið fyrir kosningarnar því þá hefði hann sigrað. Í staðinn hafi verið tilkynnt um það fimm dögum eftir kosningarnar.
The @US_FDA and the Democrats didn’t want to have me get a Vaccine WIN, prior to the election, so instead it came out five days later – As I’ve said all along!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) November 10, 2020