Þetta kemur fram í umfjöllun The Times. Sem dæmi er nefnt að mynd, sem sést hér fyrir neðan, eigi að sýna Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, ganga eftir Downing Street með rauða möppu frá Astrazeneca undir handleggnum. Búið er að setja andlit snjómannsins hræðilega á Johnson.
Önnur mynd, sem einnig sést hér fyrir neðan, sýnir apa í slopp frá Astrazeneca með sprautu í höndinni. Sú þriðja sýnir fólk sem fer inn í tjald til að fá bólusetningu en kemur út hinum megin sem abar og górillur. Einnig eru til myndbönd með sama boðskap, að breska bóluefnið breyti fólki í apa.
The Times segir að þetta „áróðursefni“ hafi verið nokkuð áberandi á samfélagsmiðlum og jafnvel heimasíðum nokkurra fjölmiðla. Segir blaðið að þetta sé hluti af herferð Rússa sem er ætlað að draga úr trú og trausti fólks á breska bóluefninu. Blaðið segir að ekki liggi fyrir hvort þessi herferð hafi verið sett af stað eftir fyrirmælum frá Vladímír Pútín, Rússlandsforseta, en blaðið segist hafa sannanir fyrir að rússneskir embættismenn tengist henni.
Blaðið sýndi Jake Wallis, sérfræðingi í rangri upplýsingamiðlun hjá Australian Strategic Policy Institute, þau gögn sem blaðið aflaði. Hann sagðist telja að hér væri um „vel skipulagða og vel fjármagnaða herferð“ að ræða.
Dominic Raab, utanríkisráðherra Bretlands, hefur sagt herferðina vera auma tilraun til að dreifa röngum upplýsingum og að Moskva „eigi sér sögu með að dreifa röngum upplýsingum“.
„Þetta er mjög alvarlegt, þetta er tilraun til að hindra vinnuna við að finna öruggt bóluefni,“
sagði ráðherrann.
Herferðin á að sögn að beinast sérstaklega að ríkjum þar sem Rússar reyna að ota eigin bóluefni gegn kórónuveirunni að stjórnvöldum. Þetta eru til dæmis Indland, Brasilía og Sádi-Arabía.
Rússar hafa vísað þessu á bug og vilja ekkert kannast við herferðina.