New York Times skýrir frá þessu. Fram kemur að tölvupósturinn hafi vakið upp ótta um að alríkisstjórnin hyggist ógna embættismönnum, sem starfa við talningu atkvæða, eða skipta sér af talningunni á annan hátt en Donald Trump, forseti, hefur krafist þess að talningu verði hætt í ríkjum þar sem hann er með færri atkvæði en Joe Biden.
Samkvæmt lögum er óheimilt að senda vopnaða alríkislögreglumenn á kjörstaði á kjördag en ráðuneytið tilkynnti saksóknurum um þá túlkun sína að heimilt sé að senda vopnaða lögreglumenn til kjörstaða og talningarstaða að kjördegi loknum.
Talsmaður dómsmálaráðuneytisins svaraði ekki beiðnum blaðamanna um viðtal vegna málsins.
Það var Richard P. Donoghue, einn af æðstu embættismönnunum á skrifstofu Jeffrey A. Rosen, aðstoðardómsmálaráðherra, sem sendi tölvupóstinn um hálfri klukkustund áður en Trump setti fram órökstuddar ásakanir um kosningasvindl og fór að krefjast þess að talning yrði stöðvuð þar sem hún er honum ekki í hag.
Maura Healey, dómsmálaráðherra Massachusetts, sagði í kjölfar frétta af tölvupóstinum að kosningar séu mál hvers ríkis og ríkin hafi fulla lögsögu yfir þeim og til að stýra því hverjir fá aðgang að talningarstöðum. Allt annað sé algjör rangtúlkun á lögum. Ríkin geti séð um kosningar og muni sjá til þess að vilji kjósenda komi fram.