Þetta hljómar eflaust ótrúlega í eyrum flestra en ekki í eyrum gallharðra stuðningsmanna Trump sem aðhyllast QAnon-samsæriskenninguna. Þeir telja að næstu vikur muni skipta sköpum, ekki aðeins hvað varðar forsetakosningarnar í Bandaríkjunum heldur einnig fyrir heimsbyggðina alla. Þeir telja að Trump hafi viljandi smitast af kórónuveirunni svo hann gæti dregið sig í hlé í smá tíma til að fá fulla yfirsýn yfir yfirvofandi aðgerðir. Nú sé hann búinn að því og geti byrjað að elta meðlimi hins svokallaða „djúpríkis (deep state)“ uppi sem og óvini sína.
Þetta mun að mati þessara einörðu stuðningsmanna vera skýringin ef hann sinnir ekki kosningabaráttunni á næstunni. Þess í stað sé hann að skipuleggja aðgerðirnar því nú sé komið að kaflaskiptum í baráttunni. Hvað varðar tilvísunina í Rauðan október þá er þar verið að vísa í bandarísku kvikmyndina „The Hunt for Red October“.
Facebook hefur komist að þeirri niðurstöðu að QAnon sé hættuleg hreyfing og hefur ákveðið að úthýsa henni. QAnon segja að mörg leynileg skilaboð og tákn séu merki þess að Trump sé farinn af stað með áætlun sína til að berja á djúpríkinu svokallaða og andstæðingum sínum. Ein þessara skilaboð er að þeirra mati að finna í tístinu sem hann skrifaði á föstudaginn um að hann hefði greinst með COVID-19. Segja stuðningsmenn QAnon að ef síðasti hluti tístsins sé skoðaður þá segi hann meira en virðist í fyrstu.
Tonight, @FLOTUS and I tested positive for COVID-19. We will begin our quarantine and recovery process immediately. We will get through this TOGETHER!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 2, 2020
Í lokinn skrifar Trump „TOGETHER“ með stórum stöfum en úr þessu lesa stuðningsmenn QAnon „to get her“ og telja að það eigi við Hillary Clinton og að nú muni Trump loks láta handtaka hana. Samkvæmt QAnon-samsæriskenningunni þá er Hillary leiðtogi djöfladýrkandi barnaníðinga ásamt til dæmis Barack Obama, fyrrum forseta, Oprah Winfrey, fjölmiðlakonu, og leikaranum Tom Hanks.
Þegar QAnon kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir um þremur árum var útgangspunkturinn í kenningunni að það þyrfti að hafa hendur í hári Hillary Clinton og stöðva hana, þá myndu lög og regla aftur komast á. Nú er sá tími kominn að mati stuðningsmanna QAnon sem hafa árum saman talað um að óveður væri í uppsiglingu og þegar það bresti á muni Trump taka harkalega á djúpríkinu og fyrrnefndum djöfladýrkandi barnaníðingum.
Talið er að mörg hundruð þúsund manns, ef ekki milljónir, aðhyllist QAnon samsæriskenninguna um allan heim. Áhrifa hennar er farið að gæta í bandarískum stjórnmálum því í sumar tryggði Marjorie Taylor Greene sér útnefningu sem frambjóðandi Repúblikana til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Hún er i framboði í Georgíuríki. Hún hefur opinberlega sagt að hún aðhyllist QAnon og hefur hyllt hinn dularfulla „Q“ sem er upphafsmaður kenningarinnar. Fyrir þremur árum byrjaði hann að birta upplýsingar sem hann hafði að sögn „fundið“. Það gerði hann á spjallsíðunni 4chan sem er mjög vinsæl meðal öfgasinna. Það sem hann skrifaði þar varð undirstaða QAnon-samsæriskenningarinnar.