Þær eru þó ansi langt í burtu frá okkur eða í rúmlega 100 ljósára fjarlægð en þær gætu samt sem áður verið ein besta von okkar um að finna líf utan sólkerfisins.
„Nú þegar næstu geimsjónaukar eru að fara á loft fáum við meiri upplýsingar svo það er mikilvægt að velja viðfangsefni. Við verðum að einbeita okkur að ákveðnum plánetum, sem hafa mest lofandi lífsskilyrði fyrir flókin lífsform,“
segir Dirk Schulze-Makuch, sem stýrði rannsókninni. Hann lagði einnig áherslu á að það þurfi að gæta þess að festast ekki í því að leita að annarri jörð því það geti verið til plánetur sem bjóða upp á betri skilyrði fyrir líf en jörðin okkar. Þetta eru plánetur sem eru eldri, aðeins stærri, aðeins hlýrri og hugsanlega blautari en jörðin.
Líf gæti, að mati vísindamannanna, átt auðveldar uppdráttar á þessum plánetum, sem fara hægar á ferð sinni um sólir sínar, en jörðin okkar.