Kjörstjórnin rökstyður þennan frest með því að búast megi við seinkunum á afhendingu pósts frá bandarísku póstþjónustunni. Þessu reyndi Trump að fá hnekkt en án árangurs.
Clarence Thomas, Samuel Alito og Neil Gorsuch, sem allir eru íhaldssamir dómarar, tóku undir beiðni Trump en hinir fimm dómarar réttarins voru annarrar skoðunar. Níu dómarar sitja í hæstarétti en Amy Coney Barrett, sem var útnefnd dómari fyrir nokkrum dögum tók ekki þátt í afgreiðslu málsins því hún hafði ekki haft tíma til að setja sig inn í það að sögn talsmanns hæstaréttar.
Repúblikanar biðu einnig ósigur í öðru máli varðandi bréfatkvæði á miðvikudaginn en það snerist um ákvörðun kjörstjórnar í Pennsylvania um að framlengja frestinn til að taka við bréfatkvæðum til 6. nóvember. Pennsylvania er einnig sveifluríki og því óvíst um úrslit forsetakosninganna þar en báðir frambjóðendurnir vonast til að sigra þar eins og í Norður-Karólínu og þar með tryggja sér mikilvæga kjörmenn.
Skoðanakönnun frá Ipsos/Reuters frá því á miðvikudag sýnir að í Norður-Karólínu nýtur Joe Biden stuðnings 49% kjósenda en Trump 48%. Í Pennsylvania er Biden með 50% stuðning en Trump með 45%.