fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Pressan

Víðtæk áhrif kórónuveirufaraldursins – Í annað sinn í sögunni þarf að aflýsa hátíðarhöldum hjá dönsku hirðinni

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 25. október 2020 09:20

Margrét er að reykja eftir að hafa verið stórreykingakona í 66 ár.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Konungbornir finna fyrir heimsfaraldri kórónuveirunnar eins og allir aðrir. Faraldurinn hefur sett mark sitt á árið hjá dönsku konungsfjölskyldunni, til dæmis varð að aflýsa hátíðarhöldum í tilefni af áttræðisafmæli Margrétar Þórhildar II drottningar. Nú hefur verið tilkynnt að nýársfagnaði konungshallarinnar hafi verið aflýst um þessi áramót. Um mörg hundruð ára gamla hefð er að ræða og er þetta aðeins í annað sinn sem nýársfögnuðinum er aflýst.

Allt frá þeim tíma er Friðrik III ríkti, hann ríkti frá 1648 til 1670, hefur hirðin boðið ýmsum embættismönnum og kjörnum fulltrúum til nýársfagnaðar á nýársdag. Ekki er vitað með vissu hversu gömul þessi venja er en sagan segir að á sautjándu öld hafi verið talað um að þetta væri gömul venja og því ekki öruggt að hún hafi hafist á valdatíma Friðriks III.

Þessum nýársfagnaði hefur verið aflýst einu sinni áður en það var 2005 en þá var fagnaðinum aflýst í kjölfar hinnar skelfilegu flóðbylgju sem reið yfir Asíu um jólin 2004 og varð mörg hundruð þúsund manns að bana.

Meðal fastra gesta á nýársfagnaðinum eru ríkisstjórnin, forseti þingsins og starfsmenn konungshallarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkjamenn loka sendiráði sínu í Úkraínu vegna gruns um yfirvofandi árás

Bandaríkjamenn loka sendiráði sínu í Úkraínu vegna gruns um yfirvofandi árás
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Þetta hafa verið hrikalega löng tíu ár“

„Þetta hafa verið hrikalega löng tíu ár“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Deilur í innsta hring Trump – „Hann þarf að hafa sig hægan. Það er bara pláss fyrir einn forseta“

Deilur í innsta hring Trump – „Hann þarf að hafa sig hægan. Það er bara pláss fyrir einn forseta“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rússar hóta að svara með kjarnorkuvopnum

Rússar hóta að svara með kjarnorkuvopnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

David Attenborough miður sín þegar hann frétti að gervigreindin stal röddinni hans

David Attenborough miður sín þegar hann frétti að gervigreindin stal röddinni hans
Pressan
Fyrir 4 dögum

Stórfurðulegt tryggingasvindl – Sjáðu myndbandið

Stórfurðulegt tryggingasvindl – Sjáðu myndbandið