Samtök sænskra lögreglumanna viðruðu fyrst möguleikann á að ráða norska lögreglumenn til starfa og hvöttu ríkisstjórnina til að skoða málið. Samkvæmt frétt Sænska ríkisútvarpsins telja Kristilegir demókratar þetta góða hugmynd og vilja gera norskum lögreglumönnum kleift að vinna í Svíþjóð.
Samtök norskra lögreglumanna eru jákvæð hvað þetta varðar og sagði formaður samtakanna, Sigve Bolstad, að betra sé að lögreglumenn fái tækifæri til að stunda vinnu í Svíþjóð en að sitja atvinnulausir í Noregi. Ef óskað sé eftir norskum lögreglumönnum til starfa í Svíþjóð sé það það besta sem er í boði. Bolstad sagði jafnframt að um 600 nýútskrifaðir lögreglumenn hafi ekki fengið vinnu í Noregi.
Meirihluti virðist vera á sænska þinginu fyrir að opna fyrir þennan möguleika. Centerpartiet, Svíþjóðardemókratarnir og Moderaterna telja hugmyndina athyglisverða.
Johan Pehrson, talsmaður Frjálslyndra, sagði að það væri gott ef hægt sé að fjölga lögreglumönnum í Svíþjóð og það sé valkostur að ráða norska, finnska eða danska lögreglumenn til starfa. Það séu þó ýmis atriði sem þurfi að skoða fyrst.
Fredrik Lundh Sammeli, talsmaður jafnaðarmanna, sagðist ekki hrifinn af hugmyndinni og telji að þetta sé ekki rétta leiðin. Betra sé að skoða hvernig sé hægt að fá fleiri Svía til að mennta sig sem lögreglumenn.
Samtök sænskra lögreglumanna telja að aðalástæðan fyrir brotthvarfi lögreglumanna úr starfi sé lág laun og slæmar vinnuaðstæður.