Danska dagblaðið Information skýrir frá þessu. Fram kemur að afbrigði að svínaflensunni hafi fundist í þýskri rannsókn sem vísindamenn við Friedrich-Loeffler stofnunina gerðu. Rannsóknin náði til rúmlega 18.000 sýna úr svínum úr tæplega 2.500 svínabúum í Evrópu.
„Það er hætta á að þessir mismunandi stofnar geti myndað nýja veiru sem geti valdið heimsfaraldri – sem sagt geti auðveldlega borist í fólk. Líkurnar á þessu, út frá köldu mati á líkunum á að þetta gerist, eru að þetta mun gerast á einhverjum tímapunkti,“
er haft eftir Hans Jørn Kolmos, prófessor í klínískri örverufræði hjá Syddansk háskólanum.
Meðal þeirra afbrigða veirunnar, sem vísindamenn hafa fundið, er ein sem er útbreidd í Danmörku, Þýskalandi og Hollandi. Hún uppgötvaðist fyrst í Danmörku en hefur nú borist til Þýskalands og Hollands.
Birgitte Iversen Damm, dýralæknir og ráðgjafi hjá dönsku dýraverndunarsamtökunum Dyrenes Beskyttelse, sagðist hafa áhyggjur af þessu.
„Rannsóknin sýnir þá hættu sem við setjum okkur sjálf í með því að vera með svo mörg dýr á svo litlu svæði. Það er hin fullkomna gróðrarstía fyrir að hættulegar veirur geti þróast og fjölgað sér. Þetta er risastórt líffræðilegt tilraunaverkefni í þeim tilgangi einum að geta fjöldaframleitt ódýrt kjöt,“
sagði hún.