CNN skýrir frá þessu. Fram kemur að fyrir tveimur árum hafi Little sagt lögreglumönnum í Texas að hann hafi myrt unga svarta konu í Chattanooga í Tennessee snemma á níunda áratugnum. Lögreglumenn frá Georgíu og Tennessee hittu Little og fengu meiri upplýsingar sem urðu til þess að þeir sannfærðust um að líkamsleifar sem fundust í Dade County 1981 væru af konunni sem Little nam á brott í Chattanooga og myrti í Georgíu.
Lögreglan birti á síðasta ári endurgerð af höfuðkúpu konunnar og bað um aðstoð almennings við að bera kennsl á hana. Fjölskylda gaf sig fram og rannsókn á erfðaefnum úr fjölskyldumeðlimum og líkinu sýndu að hér var um Parker að ræða en hún var þrítug þegar hún var myrt.
Little, sem afplánar nú þrjá lífstíðardóma í Kaliforníu, hefur játað að hafa myrt fimm konur á Georgíu-Tennessee svæðinu, þar á meðal Parker. Hann hefur játað að hafa kyrkt 93 konur á árunum 1970 til 2005. Hann einbeitti sér að konum sem tilheyrðu viðkvæmum hópum. Til dæmis vændiskonum og fíkniefnaneytendum.