Meðal fyrri spádóma hennar, sem aðdáendur hennar telja að hafi ræst, eru flóðbylgjan mikla í Indlandshafi á annan dag jóla 2004 en hún varð tæplega 230.000 manns að bana. Hún er einnig sögð hafa séð hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 2001 fyrir sem og Brexit.
Vanga ólst upp á sveitabæ þar sem nú er Norður-Makedónía og missti sjónina í sandstormi. Segja aðdáendur hennar að þetta hafi fært henni „aðra sýn“ sem gerði henni kleift að spá fyrir um framtíðina en margir spádómar hennar eru sagðir hafa gengið eftir. Mirror skýrir frá.
Vanga skrifaði spádóma sína aldrei niður en búlgörsk stjórnvöld tóku hana svo alvarlega að hún var sett á laun hjá ríkinu og ríkisráðnir ritarar voru látnir skrá spádóma hennar og samtöl hennar við fólk sem leitaði til hennar.
En ekki hafa allir spádómar hennar ræst og svo virðast margir þeirra ekki verða opinberir eða að minnsta kosti túlkaðir „rétt“ fyrr en eftir að atburðirnir eiga sér stað.
Veikindi Trump áttu að eiga sér stað á síðasta ári samkvæmt einni útgáfu spádóma hennar og kjarnorkustríð sem hún spáði á árunum 2010 til 2014 varð sem betur fer ekki að veruleika.
Varðandi framtíðarspádóma hennar þá spáði hún fyrir um breytta sporbraut jarðarinnar 2023 og uppgötvun nothæfrar aðferðar til tímaferðalaga árið 2304. Síðast spádómur hennar er fyrir árið 5079 en þá á alheimurinn að líða undir lok. Við verðum víst bara að bíða og sjá hvort þetta rætist.