Þeir hentu strax björgunarhring út í sjóinn og drógu síðan Angelica Gaitan, 46 ára, upp í bátinn. Hún hafði þá verið horfin í tvö ár.
„Ég er endurfædd. Guð vildi ekki að ég myndi deyja,“
voru að sögn hennar fyrstu orð eftir björgunina. The Sun skýrir frá. Hún var með litla meðvitund og mjög köld. Það var ekki fyrr en hún var komin í land og búin að fá aðhlynningu sem hún gat sagt sögu sína.
Hún hvarf fyrir tveimur árum og hafði ekki haft samband við fjölskyldu sína eftir það. Í 20 ár hafði hún verið í ofbeldissambandi sem hún hafði ítrekað reynt að losna úr. Eftir að maður hennar hafði lamið hana svo illa að hún var nær dauða en lífi tókst henni að flýja. Næstu sex mánuði bjó hún á götunni en fékk þá inni í athvarfi fyrir heimilislausa. Henni var síðan gert að flytja þaðan eftir að maður hennar flutti úr bænum.
Mikið þunglyndi sótti á hana eftir þetta og hún ákvað að taka eigið líf. Hún kastaði sér í sjóinn en næstu átta klukkustundirnar flaut hún um Atlantshafið á meðan hákarlar hringsóluðu um hana og hún missti meðvitund öðru hvoru.
Hún er sannfærð um að hún hefði drukknað ef Rolando og Gustavo hefðu ekki fundið hana.