„Þetta er áfall og staðfestir það sem við höfum óttast mest. Donald Trump hefur eytt öllu lífi sínu í að misnota skattkerfið með því að ljúga, svindla og stela á þann hátt að maður getur eiginlega ekki ímyndað sér það,“
skrifaði Pascrell á Twitter eftir afhjúpun New York Times.
Trump vísaði því á bug í gærkvöldi að hann hefði ekki greitt skatt:
„Þetta eru falsfréttir. Ég hef greitt mikinn tekjuskatt í New York,“
sagði hann.
Hann lofaði einnig að birta skattaupplýsingar sínar þegar yfirstandandi málum hans við skattyfirvöld er lokið.
New York Times segir að ástæðan fyrir því að Trump hefur ekki greitt skatt árum saman sé að tap hans hafi verið meira en tekjur. Ef þetta er rétt þá eru nú komnir ansi miklir brestir í þá mynd sem Trump hefur dregið upp af sjálfum sér sem duglegum og auðugum kaupsýslumanni.
Demókratar hafa ekki dregið af sér við að tjá sig um þessa „skattasprengju“ sem New York Times lét falla í gær, skömmu fyrir forsetakosningarnar.
„Hinn sjálfútnefndi milljarðamæringur Donald Trump fékk 72,9 milljónir dollara endurgreidda frá skattinum en hann greiddi ekki alríkisskatt í tíu af fimmtán árum. Trump elskar fyrirtækja sósíalisma fyrir sjálfan sig en grjótharðan kapítalisma fyrir aðra,“
skrifaði Bernie Sanders á Twitter.
Billy Pascrell segist ætla að fylgja málinu áfram og hætti ekki fyrr en öll skattagögn Trump hafi verið gerð opinber.
„Trump er spilltasti forseti sögunnar. Ég gefst ekki upp við að sanna það. Þetta snýst ekki um pólitík því enginn borgari er hafinn yfir lög,“
sagði hann.
Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, birti stutta færslu á Twitter um skattamál Trump:
„Réttu upp hönd ef þú greiðir meira í alríkisskatt en Trump forseti.“