„Mér til varnar vil ég bara segja að ég átti stefnumót í hádeginu og klippingu sem ég vildi ekki aflýsa á síðustu stundu. Auk þess sagði hann að honum liði vel. Þetta er jú ekki meira en kvef,“
skrifaði hún.
Ekki er vitað hvort konan meinti þetta í fullri alvöru eða var að grínast en óháð því þá létu viðbrögðin ekki á sér standa.
„Þetta er eins óábyrgt og nokkuð getur verið.“
„Þá veit hún að hún er slæm móðir en veit hún líka að hún er almennt séð slæm manneskja?“
Var meðal þess sem fólk skrifaði í umræðu um færslu konunnar.