fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Pressan

Rúmlega 1 af hverjum 100 íbúum er smitaður af kórónuveirunni – Hverfum lokað

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 22. september 2020 06:55

Kórónuveira. Mynd: BSIP/UIG Via Getty Images)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær var 37 hverfum í og við Madrid á Spáni lokað. Íbúar þeirra eiga að halda sig innandyra í að minnsta kosti 14 daga frá og með gærdeginum. Þetta tilkynnti Isabel Díaz Ayuso, forseti Madrid-héraðs, á föstudaginn. Í hverfunum búa um 850.000 manns. Fólk má aðeins yfirgefa hverfin sín til að sækja vinnu, fara í skóla eða til læknis.

Ekki eru allir sáttir við þetta og einn íbúi eins hverfisins spurði í samtali við TVE  hver tilgangurinn væri með að loka fólk svona inni á svæðunum þar sem það býr en um leið heimila því að fara til vinnu með stappfullum neðanjarðarlestum.

Íbúar í hverfunum mega ekki safnast saman fleiri en sex í einu, hvorki utanhúss né heima hjá sér og öllum almenningsgörðum hefur verið lokað.

Mjög há smittíðni er í hverfunum eða rúmlega 1.000 smit á hverja 100.000 íbúa á síðustu tveimur vikum. Það þýðir að rúmlega 1 af hverjum 100 íbúum hefur greinst með kórónuveiruna á síðustu 14 dögum.

Um 6,6 milljónir búa í Madrid-héraðinu og ná lokanirnar til 13% íbúanna en þessi 13% standa að baki um 24% af smitum i héraðinu. Það eru aðallega fátækustu hverfin sem sæta lokunum nú.

Mörg þúsund manns mótmæltu þessum aðgerðum á sunnudaginn og beindust mótmælin sérstaklega að Ayusu og var hún sökuð um að breiða út hatur og ótta meðal almennings eftir að hún sagði í síðustu viku að aukningu smita megi rekja til „lífshátta innflytjenda“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?

Hafa risavaxnir menn einhvern tímann verið til?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum

Athyglisverðar myndir prýða 1.600 ára gamlar myntir sem fundust á Ermarsundseyjunum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“

Páfagarður bannfærir erkibiskup sem sagði Frans páfa vera „þjón djöfulsins“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu

Færð þú frið í sumarfríinu? Fyrirtæki hafa samband við þriðja hvern starfsmann í sumarfríinu
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan

Sjö ávanar sem gera tannlækninn þinn ríkan
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega

Fjallgöngumaður hvarf fyrir 22 árum – Fannst nýlega
Pressan
Fyrir 6 dögum

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu

„Gerist bara einu sinni á ævinni“ – Einstakt tækifæri til að sjá sprengingu á dvergstjörnu
Pressan
Fyrir 6 dögum

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga

Grunaður um að hafa myrt konu og dætur íþróttafréttamanns með lásboga