„Ef þú spyrð mig hvenær það verður almennt aðgengilegt fyrir bandarískan almenning, þannig að við getum farið að nota það og tekið upp fyrri lífshætti, verðum við væntanlega að bíða þar til á öðrum eða þriðja ársfjórðungi 2021,“
sagði hann þingnefndinni. Hann sagði einnig að þegar bóluefnið verður tilbúið þá muni taka sex til níu mánuði að bólusetja nægilega marga Bandaríkjamenn. New York Times skýrir frá þessu.
Hann sagði einnig að ríki Bandaríkjanna bráðvanti fleiri úrræði og peninga ef þau eiga að geta tryggt dreifingu bóluefnis til almennings. ABC News skýrir frá þessu.
„Við þurfum mikið af peningum og núna er rétti tíminn til að koma þeim til ríkjanna. Núna skortir okkur fé,“
sagði Redfield.
Á þriðjudaginn sagði Donald Trump, forseti, að líklega væru aðeins 3 til 4 vikur í að bóluefni yrði tilbúið til notkunar. Á fréttamannafundi í gærkvöldi sagðist hann vera ósammála orðum Redfield.
„Ég sá þetta og hringdi í hann og sagði: „Hvað meintirðu með þessu?““
sagði Trump og bætti við að Redfield hafi verið „ringlaður“ þegar hann tjáði sig um hvenær bóluefni verði tilbúið til notkunar.
„Ég held að hann hafi gert mistök þegar hann sagði þetta. Þetta voru bara rangar upplýsingar. Ég held að hann hafi verið ringlaður,“
bætti hann við að sögn CNN.