Landið sem um ræðir er Kósovó. Skoðanakannanir hafa sýnt að þriðjungur landsmanna trúir ekki að veiran sé til og 61% telja að of mikið sé gert úr alvarleika hennar ef hún er þá til.
Niðurstaðan fer ekki vel í forseta landsins, Avdullah Hoti, sem er sannfærður um tilvist veirunnar enda fékk hann sjálfur að kenna á henni í byrjun ágúst þegar hann smitaðist. AFP hefur eftir Hoti að niðurstöður skoðanakannana séu „óásættanlegar“ og hefur hann brugðist við með því að herða enn aðgerðir, til að hefta útbreiðslu veirunnar, í þeim bæjum sem verst hafa orðið úti og með því að banna fjölmennar opinberar samkomur. Einnig hefur fjölmiðlum verið heimilað að heimsækja sjúkrahús svo þeir geti sýnt hvernig verst stöddu sjúklingarnir hafa það.
Þetta nýtti ein sjónvarpsstöð sér nýlega og ræddi við eldri konu sem var að jafna sig eftir tveggja vikna veikindi:
„Ef ég á að vera heiðarleg þá hélt ég að veiran væri ekki til. Nú, eftir að hafa farið í gegnum helvíti, er ég sannfærð um að hún er til og segi allri þjóðinni það,“
sagði hún.
Ástandið hefur batnað aðeins í landinu að undanförnu en samt sem áður er dánartíðnin ein sú hæsta í heiminum, hún er bara hærri í nokkrum löndum í Suður-Ameríku.