Þetta kemur fram á upptökum af viðtali við Trump sem CNN hefur undir höndum. Á upptökunum segir Trump að hann hafi dregið úr því hversu hættuleg veiran er til að valda ekki ótta.
„Það síðasta sem þú vilt gera er að valda ótta. Ég elska landið okkar og ég vil ekki að fólk sé hrætt,“
sagði Trump á fréttamannafundi í gær þegar hann var spurður út í upptökuna.
Það er Bob Woodward, þekktur blaðamaður, sem gerði upptökurnar þegar hann vann að bók um Trump en hún er byggð á 18 viðtölum. Bókin heitir „Rage“ og kemur út á næstunni. Í þeim kemur fram að Trump hafi strax í febrúar vitað hversu hættuleg veiran er en samt sem áður hamraði hann á því við bandarísku þjóðina að hún væri ekki hættulegri en venjuleg inflúensuveira.
Í upptöku frá 7. febrúar nefnir Trump að veiran geti borist með lofti.
„Hún berst með lofti. Það er verra en snerting. Svo hún er mjög útsmogin. Hún er einnig banvænni en versta inflúensa,“
sagði hann þá en á opinberum vettvangi margsagði hann að veiran væri svipuð og inflúensuveirur.
Joe Biden, sem etur kappi við Trump um forsetaembættið, skóf ekki utan af hlutunum í gær þegar fréttir bárust af upptökunum.
„Trump vissi þetta og gerði vísvitandi lítið úr hættunni. Hann laug að bandarísku þjóðinni. Á meðan þessi banvæni sjúkdómur plægði sig í gegnum landið okkar, brást hann algjörlega skyldum sínum og það vísvitandi. Þetta er vanræksla á skyldum. Þetta er hneyksli,“
sagði Biden.