BBC segir að verkamenn hafi fundið kassann þann 20. ágúst í holum steini. Gosbrunnurinn ber nafn Pierre David sem var fyrsti bæjarstjóri bæjarins eftir belgísku byltinguna. Þegar hann lést 1839 gaf hann bænum hjarta sitt og það í bókstaflegri merkingu.
Á heimasíðu bæjarins kemur fram að „ótrúleg uppgötvun hafi verið gerð í miðjum gosbrunninum“.
Á kassanum stóð: „Hjarta Pierre David var komið fyrir í minnismerkinu 25. júní 1883.“
Maxime Degey, yfirmaður framkvæmda hjá bænum, sagði í samtali við The Times að þjóðsagan hafi reynst eiga við rök að styðjast.
Pierre David lést 68 ára að aldri þegar hann datt niður af háaloftinu heima hjá sér. Hann var að sögn elskaður og dáður af bæjarbúum. Þeir eru sagðir hafa verið óhuggandi og hafi hrundið fjársöfnun af stað til að reisa minnismerki um hann. Með samþykki fjölskyldu hans var hjarta hans tekið úr líkinu svo það gæti orðið hluti af minnismerkinu. Það tók síðan tugi ára að safna nægu fé fyrir minnismerkinu og langan tíma tók að ákveða hvar það ætti að vera. Að lokum varð Place Verte fyrir valinu og þar var stór gosbrunnur reistur með styttu af Pierre David. Kassanum var síðan komið fyrir í honum.
Kassinn og hjartað verða framvegis til sýnis í listasafni bæjarins þar sem hinir 55.000 íbúar hans og ef til vill aðrir geta séð það sem „allir“ töluðu um í 130 ár.